Bloggsíða
02.12.2006 01:02:13 / hanna57

Fréttir úr Hafnarfirði

Halló allir nær og fjær...Lífið hér gengur sinn vanagang,lítið fréttnæmt eins og er,jólahlaðborðin byrjuð og ég var að vinna við eitt slíkt í dag og það var glæsilegt að vanda.Það voru starfsmenn Atlanda,Hjartaverndar og Jarðborana sem fengu að njóta þess,og annaðkvöld fæ ég að njóta þess að láta stjana við mig í skíðaskálanum í Hveragerði,við Kiddi erum að fara með vinnunni hans á jólahlaðborð.Fyrrverandi tengdadóttir mín (ein af mörgum) var að gifta sig í Kanada,ég er búin að sjá myndir af henni þar sem faðir hennar leiðir hana upp að altarinu,kanski að tábrotið sé ennþá að hrjá hana.:$Þar sem langur tími er liðin frá því atviki þá held ég að þetta sé gróið og við erum í ágætu sambandi.Læt þetta duga í bili........kveðja.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 11:35:31 / hanna57

Líf og fjör í Hafnarfirði

Það er svaka stuð hér um þessa helgi,við Amelía erum búnar að fara að gefa öndunum við lækinn í morgun og síðan skoðuðum við jólaþorpið sem verður opnað í dag,við förum kanski og kíkjum á jólasveinana sem ætla að mæta,nokkuð snemma á ferðinni blessaðir:)Stuðið heldur svo áfram í kvöld,við erum að fara í matarboð upp í Orrahóla og á ball með Geirmundi á eftir.Annars er allt gott að frétta,jólastemming hjá okkur þó ennþá sé mánuður til jóla,það er bara svo notalegt að undirbúa jólin í rólegheitum og vera tímanlega í því sem þarf að gera..Ekkert stress,allavega ekki mikið..bæ bæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 23:40:49 / hanna57

Jólin nálgast

Jólin jólin jólin koma brátt...undirbúningur í fullum gangi,3 sortir steinlágu í vikunni og búið að líma vel og vandlega fyrir kökudunkana..Gunnar Laufey og Amelía eru í heimsókn,æðislegt að fá þau og Amelía fær að sofa hjá ömmu..Æfingar í Hress ganga ekki nógu vel,aðallega vegna tímaskorts,annars gengur það vel,ótrúlega mikil breyting að vera að lyfta lóðum í stað þess að hlaupa...gott að blanda þessu saman..en engin tími fyrir bæði..það verður ekkert hálfmaraþon á næsta ári með þessu áframhaldi:)gott í bili.....kveðja 


» 0 hafa sagt sína skoðun